*KattarKvikYndið*
Í sumar dó minn elskulegi kisi Moli aðeins átta og hálfs árs gamall. Við Moli vorum miklir vinir og milli okkar ríkti sérstakt samband. Eins og gefur að skilja féllu allmörg tárin og heimilið var ægilega tómt án hans. Reyndar eigum við hund líka sem heitir Kiljan og er mikill meistari en sökum gríðarlegrar stærðar og fyrirferðar get ég ekki tekið hann með mér uppí rúm eins og hægt var með Mola.
Nú ég hóf strax leit að arftaka Mola og komst að því mér til mikillar armæðu að enginn ræktar þessa tegund - Heilagan Birman - lengur á Íslandi. Ég er svo gríðarlega hrifin af þessari tegund og leitaði því uppi fólk sem á slíka ketti til að ráðfæra mig við þau um hvað hægt væri að gera.
Einn viðkunnalegur Reykvíkingur tók svo vel í tölvupóstinn að hann ákvað bara að gefa mér sinn kött! Fjögurra ára gamlan heilagan Birman að nafni Vampy. Heimilisaðstæður þar þóttu Vampa ekki hentugar og var því tilvalið að hann færi á heimili þar sem slíkur köttur hefði verið og sambýlingar kynnu til verka.
Nú hefur hann verið í Garðabænum í nokkra mánuði og sambúðin gengur að mestu leyti vel. Smávægileg vandamál eru þó með nafnið þar sem það þykir svolítið furðulegt - eðlilegar skýringar eru þó fyrir því því kötturinn er frá Luxemborg og var ættleiddur til landsins ungur að árum. Í raun heitir hann mun lengra nafni - Vampy Von Dürchen eða e-ð álíka.
Mamma kallar hann Rögnvald, Elísabet kallar hann Georg og við hin köllum hann tilfallandi nöfnum.
Á þessum tíma sem liðinn er síðan hann kom til okkar hefur hann í auknu mæli sýnt af sér stórfurðulega hegðun. Hann opnar dyr, nagar sig í gegnum blautmatspakka og er öll hegðun hans vægast sagt undarleg - sérstaklega þegar litið er til þess að hann er nú einu sinni bara köttur.
Við höfum náð myndum af honum á nokkrum skemmtilegum augnablikum:
Casual kattastaða ...
Hann felur sig í trjám og heldur að ég sjái hann ekki ...
Hann liggur á bakinu eins og hann sé maður ...
Hann kemur sér fyrir á furðulegustu stöðum ...
Hann notast við kodda ...
Sefur með tuskudýrum ...
Fer í mjöög perralega stellingu þegar Ásta klappar honum - og sko bara ef það er Ásta ...
...
Hann kyssir Ástu og telur hana kærustuna sína ...
Hann grefur sig ofan í sængur og teppi - býr til holu ...
Finnst gott að sofa þannig að hann sé aalveg að renna niður úr rúminu ...
Sefur oftar en ekki í Súperman stöðunni ...
Hann er lekker og er alltaf með aðra loppuna fram ...
Hann er óttalegt ofurkrútt :)
---
Ég sé það þegar ég skoða þessar myndir að það er alltaf vinstri "handleggurinn" sem er stífur sama hvernig hann liggur :D
Hann er sumsé mikill snillingur og einnig hin besta "afþreying" - svo er hann líka búinn að læra að kyssa!
Hann verður reyndar mjög sorgmæddur á kvöldin þegar allir fara að sofa og þá grætur hann sárt og vantar ógurlega athygli. Fyrst um sinn gripum við til þess örþrifaráðs að loka hann inni í herberjum á næturnar til að fá svefnfrið en það dugði skammt því þá lærði hann að opna dyrnar. Næst settum við hann útí bílskúr (hljómar mjög cruel ég veit) - það dugði heldur ekki því hann lærði líka að opna þær dyr - sem ég veit ekki hvernig hann fór að því maður þarf að grípa í húninn og tosa fast en hann lætur það ekkert aftra sér heldur æðir út úr bílskúrnum og vælir beint fyrir utan gluggann hjá mér þangað til annaðhvort ég eða Árni - ok alltaf Árni - stendur upp og hleypir honum inn.
Jæja - gæti haldið endalaust áfram að babbla um köttinn sem heldur að hann sé maður en læt hér staðar numið :)
*EddaSif*
Gleðilegt sumar! :)
Ákvað í tilefni sumarkomu, jú og þeirrar staðreyndar að ég er að vinna á safnadeild RÚV og það til fimm í dag, að skella inn nýju bloggi.
Við, ég og Árni, mamma og pabbi og Páll jr, héldum uppí langferð ekki alls fyrir löngu. Tilefnið var ferming Melkorku frænku á Dalvík.
Árni litli ;)
Palli pungur
Lögð af stað - góður svipur ... :P
Á leiðinni í kirkjuna :)
Sætustu strákarnir! :*
Mamma sagðist ætla að ná okkur á flipphliðinni ...
Marta frænka og kórinn
Barnið fermt
Allir mjög einbeittir á svip ...
Dúddar ;)
Helga Bryndís frænka og maðurinn hennar
***
Síðasta föstudag átti svo Margrét nokkur Maack afmæli og við Elín og Írena skunduðum á Bellys! ;D
Fliiipp! :P
***
26 dagar í New York og Santa Barbara ... Ó mæ lord!
Svo er gaman frá því að segja að í dag eru akkúrat sex ár síðan ég fermdist :O
Yfir og ÚT!
Kæru Elísabet og Geiri :)
Taktarnir eru engu líkir - þessar myndir voru teknar þegar við gerðum síðustu pitsu ;)

Kitchen Aid vélin stillt - það verður reyndar ekki gert aftur því deigið festist allt og við eyðilögðum hrærarann, það þarf víst að handhnoða þessar elskur :P

Deigið hnoðað :)

Sýningin hefst! ;D -deigið flatt og því kastað í loftið ...


Svo fáiði þennan KILLER svip þegar stykkið er tilbúið fyrir ofnbökun! :D
Þetta bara getur ekki klikkað ;)
---
Annars vil ég þakka fólki fyrir stórskemmtilegt laugardagskvöld - myndirnar eru margar ótrúlega fyndnar og þær fá að líta netsins ljós fyrr en síðar ;)

Beta ofurhottí :*

Ég smellti mér í sundbolinn :p

:)

Þrjár fallegar ljóskur heiðruðu okkur með nærveru sinni ;)
---
Og síðast en ekki síst:
47 dagar í Santa Barbara og New York með Árnusi!!! :D


Ekki svo slæmt ha? ;)
*hlakkhlakk*
---
Pálspige :)
Bömmer
TAKK ÁRNI!!!
:p
En svo er annað - ég veit ekki betur en svo að þegar ég fór á kynningu á lögfræði í HÍ um daginn var þessi nákvæmlega sama rauðhærða kona þar (og er nú komin í HR).
Ekki eru til tvær svona?
---
*Edda*
The weirdest thing!
Furðulegur atburður átti sér stað hérna á safnadeildinni fyrir örfáum mínútum. Hér sit ég, ein og yfirgefin, að hugsa um hvað mig langar gífurlega mikið í nammi - nýbúin í hádegismat og svona. En í fyrsta lagi er ég að reyna að hætta að borða svona mikið nammi og í öðru lagi nenni ég ekki að standa upp, taka lyftuna uppá fimmtu hæð og þurfa svo að nota mikla orku í að velja nammi þar -svo ég sit um kyrrt.
Nema hvað! Inn kemur Baldvin Þór Bergsson, fréttamaður, og spyr mig hvort ég vilji kaupa annaðhvort súkkulaðistykki eða nammipoka á fimmtíukall! Já takk!
Allar pælingar um minnkað nammiát og almennt heilbrigði flugu út um gluggan, ég stökk upp úr stólnum, náði í fimmtíukall í veskið mitt og sit nú hér alsæl með fullt af karamellum og alls kyns gúmmolaði! :) ... nú er mér reyndar að verða óglatt af ofáti :S
En af hverju eru ekki fleiri karlmenn eins og Baldvin Þór Bergsson?
Flingflang
Mikið gífurlega varð ég stolt af honum Danna bróður mínum á mánudaginn þegar þessi skemmtun blasti við í Morgunblaðinu:
Svo vil ég líka nýta tækifærið og lýsa eftir hjartgóðum og blíðum einstakling sem getur hugsað sér að hýsa mig, eitt stykki kærasta og kött til frambúðar. Þessi einstaklingur má ekki búa á Íslandi og verður helst að búa í Santa Barbara í Bandaríkjunum. Húsið hans/hennar verður að vera flott og vel staðsett. Ekki skemmir fyrir að vera á Forbes listanum yfir ríkustu einstaklinga í heimi. Öll þrjú erum við gríðarlega myndarleg og vel upp alin. Áhugasamir hafi samband sem fyrst :)
-EddaSif-
Allar Spánarmyndirnar komnar held ég :)
Hvert eigum við að skella okkur næst?
Gettu Betur í kvöld - Áfram Árni, Stefán og Finnur! ;D
-Eddus-




