Prófíll

  • Nafn: Edda Sif Pálsdóttir
  • Stađur: Garđabćr
  • Hjúskaparstađa: Árni Már

Auglýsing

Undirsíđukubbur

Undirsíđukubbur

Prófíll

  • Nafn: Edda Sif Pálsdóttir
  • Stađur: Garđabćr
  • Hjúskaparstađa: Árni Már

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

!!!

04. október 2007 klukkan 19:24
Heyrðu það ætlar aldeilis að draga til tíðinda í Valencia-borg í dag! :D
Farangurinn minn kominn, enginn grátur þriðja daginn í röð og Rosa setti í eitt SALAT OG PASTA/LASAGNOFNRÉTT í matinn! Máltíð algjörlega laus við hrísgrjón! :D
Er að setja myndirnar inn og þær verða komnar eftir smá í e-i valmynd hérna vinstra megin! ;)

Eddinho

---

Myndirnar allar komnar inná snapfish - var búin að setja næstum allt hér inn þegar ég ýtti á vitlausan takka og allt hvarf! *klöppumfyrirmanneskjunnisemræðurekkiviðhendurnarásér*
Þeir sem geta ekki beðið geta fengið passwordið annars geri ég þetta aftur á eftir :) Nú er að hefjast quality time hjá okkur elínu (grey's, flögur og slíkt ;))
Og Elísabet! Þetta eru líka Viljapartýsmyndirnar :)

Dagur 4 og 5 :)

04. október 2007 klukkan 19:08
Ekki liðið langt á þessa ferð en ég er strax hætt að nenna að blogga :S Eeen ....

Vöknuðum í gær eins og vanalega og fórum í mollið eins og vanalega.
Keyptum okkur skvísföt og ýmiss konar fínerí eins og naglaklippur-, þjöl og lakk.

Puntuðum okkur voða fínt og splæstum í taxa á leikinn. Ekkert hallærislegra en að taka glerfínar strætó nr. 71!
Rosa varaði okkur þrisvar við að fara svona út en við bara "ooo hún er svo vitlaus! skilur ekki að við erum með VIP passa!" - Þegar við vorum mættar á leikvanginn starði fólk svoleiðis á okkur eins og við værum e-r fyrirbæri! Fólk meira að segja gekk svo langt að hrópa e-ð á eftir okkur og flauta! :S Á þeirri stundu var ég mjög reið pabba að hafa sagt að við þyrftum að vera rosalega fínar.

Eftir nokkuð plamp á hælunum fundum við innganginn okkar og þar var allt í lagi að vera svona fínar :) - þó við höfum reyndar verið í aðeins of fínni kantinum.

En við fengum fordrykki og snittur fyrir leik, aftur í hálfleik og svo var matur eftir leikinn.
Leikurinn sjálfur leið á einu augnabliki og við vorum í geeggjuðum sætum! Sáum allan völlinn vel og leikmennina :) Sumt sáum við of vel eins og þann óaðlaðandi mann Avram Grant en rassinn á Shevchenko sér maður aldrei of vel! :P ;) Hann var alveg í essinu sínu að hita upp beint fyrir framan okkur ;P

Við vorum soldið lengi að koma okkur heim því við fundum ekki leigubíl :(

Það var því óttalega notalegt að skríða uppí rúmin okkar og horfa á Grey's með nammi fyrir svefninn ;) Þetta er orðið okkar svona "quality time" á kvöldin :)

Í dag sváfum við út - höfðum það bara notalegt áður en við bókstaflega syntum í strætóinn! :P Það rigndi hundum og köttum og okkur sárvantar regnhlíf!

Núna erum við nýkomnar heim úr skólanum og viti menn! Taskan mín (Eddu) beið okkar í herberginu! :D En Elínar taska er enn ekki komin í leitirnar sem er stórfurðulegt hafandi ekki haft viðkomu í Þýskalandi eins og mín! En við náum bara sjálfar í hana á flugvöllinn þá.

Það er því mikil gleði í hjarta núna - komin með allar snúrurnar og við erum strax byrjaðar að setja myndirnar inná tölvuna - myndasystemið hérna á bloggar.is er svo leiðinlegt að við setjum þær bara á snapfish og komum þeim svo e-n veginn hingað :) ..en þær eru sum sé væntanlegar í kvöld!

Bless þangað til næst :)
Elín the daughter of Hrafn and Edda the daughter of Paul

Aaaarg!

04. október 2007 klukkan 10:56
Bloggaði mega langt blogg áðan um gærdaginn en það er e-a hluta vegna ekki inni á síðunni og ég veit ekkert hvert það fór :S  - örugglega til Munchen með töskunni minni eða e-ð!

Blogga þá bara aftur í kvöld eða e-ð!

Spánarkveðja
Edda og Elín

Buenos noches

03. október 2007 klukkan 22:15
Erum á lífi - komumst loksins heim af leiknum :)
Það var geeeggjað og auðvitað vann aðalliðið!
Bloggum í fyrramálið - ætlum að leggjast aðeins í Grey's Anatomy fyrir svefninn :)

E y E

Ţriđji dagur ferđar :)

02. október 2007 klukkan 19:12
Allt hefur gengið ágætlega fyrir sig í dag. Erum hvorugar búnar að taka grátukast enn sem komið er.
Vöknuðum í morgunmat hjá Rosu hinni heftuðu (sem er nú óttalega indæl þó heimkynnin séu frábrugðin því sem við þekkjum heima) og fórum svo útí mollið. Jebb við rötum þangað :P ;) Versluðum e-ð aðeins því töskurnar hafa ekki enn skilað sér :(
Fórum svo á Mestalla leikvanginn á skrifstofu Champions League og náðum í miðana okkar - voðalega montnar! :P ;)
Ef töskurnar verða ekki komnar á morgun verðum við að gjöra svo vel að finna okkur e-ð rosalega smekklegt til að mæta í á leikinn :) ... ef til þess kemur höfum við allan daginn því við ætlum ekki í skólann á morgun (hann er seinni partinn og þá erum við að taka okkur til og mæta á völlinn ;)).
Vorum komnar tímanlega á háskólasvæðið í dag og fengum okkur að borða á einum staðnum þar inni. Þetta svæði er alveg eins og í bíómyndunum og verður vonandi gaman að prófa að vera þarna :) Reyndar erum við Elín alveg einstaklega bitrar útí pör sem spranga þarna um eins og ekkert sé - kyssast á flötunum og hafa það notalegt ... helvítis pör! :P ;D
Skólinn var skárri í dag en í gær - erum í sitthvorn klukkutímann og kortérið hjá sitthvorum kennaranum. Fyrst hjá Rafael sem er alltaf hlæjandi og glottandi og það heyrist e-ð furðulegt hljóð á meðan - við viljum meina að hann sé mongólítaglaður (ljótt ég veit en það útskýrir þetta bara svo vel). Í gær fór þetta bara í taugarnar á mér sökum taugaveiklunar og almennrar óánægju en í dag var þetta bara fyndið.
Svo hjá Önu (Ana) sem er stór kona :) Ekki há þó í loftinu ...
Í gær brast ég næstum í grát í tímanum hjá henni en í dag fannst mér hún betri :)
Lendum reyndar í að gera soldið furðulegar æfingar og þetta getur verið mjöög langdregið og þurrt - sérstaklega þar sem við erum bara tvær í tíma :S ... enn sem komið er allavega :)

Núna erum við nýkomnar heim - leiðin heim úr skólanum sem á að vera þrjátíu mínútur (og öllum í welcoming dinnernum fannst sjokkerandi langt) er í raun vel rúmur klukkutími!

Töskurnar ekki ennþá komnar - skil ekki af hverju þetta tekur svona langan tíma :S Það vita allir hvar þær eru en það þarf bara að koma þeim hingað - sem á nú ekki að vera neitt mál.
Þýðir það að þær séu ekki komnar núna að þær muni ekki koma?

Annars er ástandið bara ágætt fyrir utan króníska heimþrá og söknuð.
Eina stundina er ég bara nokkuð sátt en þá næstu er ég alveg ómöguleg og vil bara fara heim.

Það töluðu tvær manneskjur við okkur Elínu í dag á háskólasvæðinu ... báðar voru þær að bjóða okkur á e-ð djamm! Á þetta fólk ekki að vera að mennta sig? :P Hvurslags kæruleysi er þetta eiginlega?! Helgin byrjar sem sagt á þriðju- eða miðvikudegi hjá þeim og stendur fram á sunnudagsmorgun. Sunnu- og mánudagar eru víst í rólegri kantinum. Fyrr má nú vera! :P

Tvennt sem við Elín höfuð tekið eftir með stelpur hérna - þ.e.a.s helst á háskólasvæðinu. Þær eru ALLAR í bara geeeðveikum fötum og últra mega pæjur! Svo eru alveg ógnvekjandi margar með áberandi átröskun! :S En þær skvísast þarna um í skvísufötunum sínum með laptop-ana og flotta hárið ;) Kannski verðum við orðnar lespíur þegar við komum heim ... hver veit. Annars erum við að fara að finna kæró handa Elínu á morgun á vellinum ... þá meina ég bókstaflega Á vellinum. Því til hvers að eiga kærasta ef hann er ekki í fótbolta? Árni þú veist hvað ég meina ... ! :P

Nú fer að líða að okkur fjórðu máltíð hér í húsi - hvernig ætli hrísgrjónin verði matreidd í þetta skipti? :P Og fyrir þá sem misskildu færsluna í gær (*hóstBetahóst*) þá er ekki átt við hinn spænska rétt, Paellu. Þetta á ekkert sameiginlegt með paellunni nema hrísgrjónin.

Bless í bili :)
ESPan

Nokkrar stađreyndir um ástand ferđarinnar!

01. október 2007 klukkan 21:12
    • Edda byrjaði á því að vakna of seint á brottfarardegi.
    • Tékkuðum okkur inn og bókuðum töskurnar alla leið til Valencia
    • Sváfum báðar alla leiðina til Parísar en Elínu tókst að kasta matarbakkanum upp í loft í svefni og allt skvettist út um allt.
    • Edda gleymdi sléttujárninu heima en fattaði það á leiðinni og mamma hennar kom því til flugfreyju sem var um borð svo því var reddað :)
    • En þegar við stóðum upp úr sætunum og vorum á leiðinni út föttuðum við að Edda gleymdi því í sætinu en það lukkaðist :)
    • Þá vorum við mættar á flóknasta flugvöll í heimi (Charles de Gaulle) í París.
    • Að lokum tókst okkur þá að finna innritunarborðið en neyddumst þá til að tékka inn tösku sem við höfðum verið með í handfarangri því hún þótti of stór.
    • Flugferðin frá París til Valencia gekk bara vel.
    • Við lentum í ágætis veðri og þá var bara að bíða eftir töskunum.
    • Þessi eina sem við höfðum tékkað inn í París (sem var btw ekki með neinu í nema tveimur bókum) kom en ekki hinar!!! Svo þarna stóðum við alls lausar og enginn sagðist geta gert neitt því við höfðum bara komið með þessu flugi sem farþegar með engan farangur.
    • Maður í bleikum gallabuxum og gallajakka (smart) tók á móti okkur og keyrði okkur á "glæsikerrunni" sinni til "fjölskyldunnar".
    • Huge, útspreyjuð blokk í þýskum anda tók á móti okkur og þá byrjuðu nú tárin að fossa hjá minni manneskjunni.
    • Á móti okkur tók pínulítil og hokin gömul kona sem talaði ekki orð í ensku. Kunnum við engin nánari deili á þessari konu.
    • Maðurinn útskýrði fyrir okkur að konan sem er húsráðandi hér væri á leiðinni svo við bara biðum.
    • Nú svo kom hún: rúmlega fimmtug, í fatla, með heftaða öxl og bringu og öll marin! :O ekki beint upplífgandi.
    • Að auki talar hún ekki orð í ensku og við ekki orð í spænsku sem setur okkur í ákveðin vandræði!
    • Hún gerðist nú svo indæl að lána okkur náttföt. Elín fékk bómullarbuxur og jakka (rauðrósótt btw) og Edda fékk fjólubláar stuttbuxur og rauðan silkikjól sem nær rétt niður fyrir rass.
    • Í þessu borðuðum við okkar fyrstu hrísgrjónamáltíð - hrísgrjón í soðinu. Með fylgdi baguette og Mozarella ostur, ólívur og ýmislegt furðulegt.´
    • Matarlystin var nú ekki beint uppá marga fiska eftir öll ósköpin svo við fórum fljótlega upp í rúm og spjölluðum í nokkra stund með dynjandi tónlist gatna ghettosins í eyrunum.
    • Ætluðum að bjarga deginum með því að leggjast upp í rúm og horfa á e-ð af því gúmmolaði sem Geiri setti inní fartölvuna but nooo - ekkert rafmagn takk! Það virðast vera e-rjar spes ghetto innstungur hérna eða e-ð! Svo tölvan batteríslaus takk fyrir bless.
    • Loksins sofnuðum við eftir miklar áhyggjur og vangaveltur.
    • Vorum svo vaktar í morgun kl. átta af fröken heftuðu og við boðaðar í morgunmat hérna frammi (þessi íbúð ef íbúð skildi kalla er btw mjööög vafasöm - það er t.d. ekkert eldhús heldur e-r furðulegur gangur sem þær nota sem eldunaraðstöðu).
    • Morgunmaturinn var í sem fæstum orðum vondur.
    • Tilraun til að losa okkur við óbragðið í munninum heppnaðist ekki þar sem ekkert tannkrem virðist vera til á heimilinu.
    • Þá gengum við með konunni (Rosu) út í mall sem er hérna í tuttugu mínútna göngufjarlægð.
    • Þar gátum við keypt það helsta sem okkur vantaði eins og nærbuxur, sokka, tannbursta og tannkrem, örfáar flíkur og síðast en ekki síst SÍMKORT. Elín er komin með sitt í símann og númerið er (0034-693252225) - Edda er þó enn með þetta íslenska því ferðatöskukonan þarf að ná í það númer.
    • Eftir mikla göngu og viðkomu í búð til að kaupa vatn, ávexti og fleira komum við aftur á heimilið - eða það sem við kjósum að kalla ghettoið/holuna.
    • Þá var hringt frá skólanum (sem við mættum btw ekki í í morgun sökum fataleysis og almenns vonleysis).
    • Og okkur tilkynnt að við ættum að mæta í skólann kl. þrjú - æddum með Rosu útí sjoppu til að kaupa strætókort.
    • Þá tók við hrísgrjónamáltíð nr. 2 - hrísgrjón með grænum baunum og skinkukubbum.
    • Svo eftir laaaanga strætóferð og göngu fundum við loksins skólann.
    • Á upplýsingaborðinum hittum við Íslending og það var eins og við hefðum fundið Jesú sjálfan!
    • Kona hjá skólanum sýndi okkur stofuna okkar - sem er vægast sagt í minni kantinum.
    • Þar sátum við tvær einar í fjóra klukkutíma og þetta er svo sannarlega engin spænska fyrir byrjendur!
    • Eftir þetta skoðuðum við okkur um á háskólasvæðinu (sem við flytjum á eftir tvær vikur í helvíti) og það er viiirkilega huggulegt :)
    • Pálmatré, grænar flatir, strandblakvöllur, íþróttasvæði, sundlaug, veitingastaðir og allt bara voðalega vinalegt!
    • Og það sem meira er ÞRÁÐLAUST NET útum allt! Við sáum stjörnur...
    • Nú þá tók við hrísgrjónamáltíð nr. 3 í boði skólans - "welcoming dinner". Í þetta skiptið með rækjum.
    • Við báðar grenjandi komum okkur inní strætó til að komast sem allra fyrst lifandi heim í holu (sem er í þessu tilviki ekkert kósý eða góð).
    • Grenjuðum alla leiðina í strætónum og mest þegar út var komið því við vissum ekkert hvar við vorum og umhverfið virkilega óheillandi.
    • En þá keyrði leigubíll framhjá sem við hoppuðum uppí og hann setti upp lesgleraugun og bjargaði okkur heim :)
    • Báðar útgrátnar, í fötunum síðan í gær og mettar af hrísgrjónum í bili vonuðumst til að Rosa gæti hjálpað okkur að hlaða tölvuna því okkur hefur dreymt um að geta dreift huganum yfir e-u broslegu.
    • En viti menn! Á hún ekki grænt millistykki blessunin sem við gátum notað til að hlaða nýju uppáhaldsvinkonu okkar.
    • Ég spurði nú bara svona meira í gamni en alvöru hvort hún væri með internet ... þá kom e-r runa á spænsku en í henni leyndist orðið "wifi" sem við náttúrulega gripum á lofti - Jose (sem við vitum ekkert hver er) birtist í herberginu og allt kinkaði e-ð kolli og vitum við ekki fyrr en við erum komnar inná mbl!
    • Já krakkar mínir kraftaverkin gerast enn! Hér sitjum við alsælar í kompunni en með NETIÐ!!! :D Við ætlum því aðeins að bíða með að hoppa út um gluggann.
    • Þetta er orðin hin ágætasta upptalning en er örugglega ekki allt komið!
    • Söknum ykkar allra mikið.
    • Sérstakar kveðjur til Árna sem er búinn að þurfa að þola mikinn grát og staðið sig eins og hetja í huggun og upppeppingum! ;***

  • Hrísgrjónakveðjur úr Valensíska ghettoinu!
    Bloggum aftur við fyrsta tækifæri ... ef við verðum á lífi! :P

  • Edda og Elín á beddanum

ps. myndir koma vonandi við fyrsta tækifæri ef/þegar við fáum farangurinn :) - allar snúrur og slíkt eru í töskunum!


AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA!

26. september 2007 klukkan 13:43
Ég þarf að gubba ég er svo spennt!!! :D

Næsta miðvikudag verð ég hérna:

Mestalla

Með VIP miða í heiðurstúku á Valencia - Chelsea!!!!!! :D Bara chilla með svala fólkinu og dinner á undan og læti!!! ... bara svona þið vitið þessir helstu!!! :P :D

Ef ég og Elín verðum ekki nettastar í heiminum þá veit ég ekki hvað! ;)

Monta Sig kveður í bili! :P :D

5 dagar!

25. september 2007 klukkan 10:42
Jææææja 5 dagar! Ekki er það nú mikið ... :)

Elsku langamman mín og hetjan hún Amma í Holtinu (ok hún heitir Hildur) dó í síðustu viku :( En sem betur fer næ ég jarðarförinni hennar sem verður á föstudaginn :)

Getur e-r verið svo elskulegur að segja mér hvað maður þarf að gera áður en maður fer í 11 vikur til Spánar?


Fór í skrautlega bíóferð í gær ... kom alltof seint, sullaði yfir mig vatni, við Beta hlógum eins og smástelpur í byrjun myndar en í lokin var ég farin að gráta! (ekki yfir Hairspray þó :P) ... endaði svo daginn á því að fá lampa í hausinn.

Enough said
:P

13 dagar!

17. september 2007 klukkan 09:35
Húlla húlla!

Varð nú bara aðeins að segja ykkur frá uppgötvun dagsins :D

Fyrsti leikurinn eftir að ég kem til Valencia er þessi hér:

03/10/2007
VALENCIA C.F.  
  Chelsea FC
UEFA CHAMPIONS LEAGUE
!!!

Ég trúi ekki mínum eigin augum! Hérna sit ég brosandi sem aldrei fyrr í Chelsea peysunni minni í Efstaleitinu! :P

Svo ætla ég klárlega á þennan hérna líka:

31/10/2007
VALENCIA C.F.  
  Real Madrid C.F.
Spanish League

Það er svo spurning um Schalke! :P Fyrir utan það að ég ætla svo miiikið aftur á Camp Nou! Vúhú!

Bara svona aðeins að ylja ykkur hérna fyrir harðan og kaldan veturinn! ;D


gledi

-ESP-

Busaball Verzló :)

14. september 2007 klukkan 21:20
Í gær var busaball Verzló og skemmti ég mér konunglega :) Ekkert meira um það að segja en hérna fylgja með nokkrar myndir frá Hnetubet :)
ps. næstum 15 dagar! :O

ég og ragnhildur sæta
Fyrrvó bekkjó you know ;D

ragnabjörg
Þessar eru alltaf sætar :)

eddaninabeta
Svalar ;) (ég e-ð lítið í því að laga á mér hárið þetta kvöld :P)

eddaroggi
Flottustu frændsystkinin ;)

eddafolk
Já þetta var sjokkerandi! :P :D

eddaragna
Haha Ragna sæt ;)

bjorgedda
Björg skvísa ;)

eddastulli
Klárlega mynd kvöldsins! :D Haha Stulli er svona helmingi stærri en ég! :P

eddabeta
Tvíeykið við ... :)

bodieddahakon
Ég og Boði vorum með alla Rottweiler texta á kristaltæru! :) Mér finnst btw töff að vera sjúskuð! :P :/

eddahakon
Þennan langar í ömmu Eddu :/ :P

eddabeta
Sjúska litla og Elísabet ofurskutla!

siggiedda
Ísaksskóla-kærustuparið klárlega nett ;D

---

Takk fyrir góða skemmtun og takk fyrir mig Sonja :)



Ásta kemur heim!

NY og Santa Barbara :)